Eftir að hafa verið sakborningur í íslenska dómskerfinu í rúm 16 ár getur Jón Ásgeir Jóhannesson loks um frjálst höfuð strokið. Hæstiréttur hefur hafnað umsókn ríkissaksóknara um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar í svokölluðu Aurum-máli  þar sem saksóknarinn vildi freista þess rétt einu sinni að fá Jón Ásgeir sakfelldan og dæmdan til fangelsisvistar. Fyrri tilraunir sérstaks saksóknara höfðu allar beðið skipbrot. Jón Ásgeir var tvisvar sýknaður af öllum ákæruatriðum fyrir fjölskipuðum héraðsdómi og málið fór auk þess fyrir Hæstarétt og nú síðast fyrir Landsrétti þar sem Jón Ásgeir var sýknaður í fjórða skiptið. Alls hafa 11 dómarar dæmt í málinu og 10 þeirra sýknuðu Jón Ásgeir af öllum sakargiftum. Samt taldi ríkissaksóknari rétt að reyna einu sinni enn!  Málið tók sex ár í íslenska réttarkerfinu eftir að ákæran var gefin út.

Sjá einnig: https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2018/12/14/aurum_holding_ekki_fyrir_haestarett/

„Með ákvörðun Hæstaréttar, um að hafna beiðni ríkissaksóknara um áfrýjunarleyfi, lýkur 16 ára sögu málareksturs íslenska ríkisins gagnvart mér. Ég hef legið undir grun, sætt ákærum eða verið sakborningur í dómsmálum við ríkið samfellt í 5992 daga.

Ég lít svo á að Aurum-málið hafi verið sérstaklega gróf aðför að mér sem einstaklingi þar sem sérstakur saksóknari Ólafur Hauksson og rannsakendurnir Grímur Grímsson og Sveinn Ingiberg Magnússon leyfðu sér að halda undan mikilvægum gögnum í því skyni að koma sök á mig.

Sjá einnig: https://www.jonasgeirjohannesson.is/jon-asgeir-oheidarleiki-haesta-stigi/

Ekki má heldur gleyma hlut slitastjórnar Glitnis sem bjó málið og kærði til lögreglu án þess að skoða það. Það hlýtur að verða farið ofan í saumana á því hvort meðlimir slitastjórnar,  þau Steinunn Guðbjartsdóttir og Páll Eiríksson, séu ekki sek um að hafa blekkt yfirvöld í þessu tilfelli.

Þessi sextán ára málarekstur hefur verið mér þung byrði, bæði andlega og fjárhagslega, en ekki síður fyrir fjölskylduna mína. Öll þessi mál reyndu mikið á foreldra mína en þau eru bæði látin og fá því miður ekki að upplifa þessi málalok.

Að lenda í klóm ákæruvalds er erfitt. Maður upplifir sig smáan í samanburði við þá sem hafa allt valdið og alla sjóði ríkisins á bak við sig. Ég upplifði þá mörgu menn sem rannsökuðu og sóttu málin á hendur mér síðustu 16 árin þannig að þeir hefðu engan áhuga á að heyra eðlilegar skýringar á atvikum. Öll mál voru rannsökuð eins og sekt væri fyrirfram gefin niðurstaða. Ég sat 260 klukkustundir í yfirheyrslum og man ekki eftir því að hafa fengið spurningar frá rannsakendum eða saksóknurum um atriði sem væru mér í hag.

Ég á þá von að íslensk stjórnvöld dragi lærdóm af þessari aðför gegn mér og skikki rannsóknarlögreglu og saksóknara til að starfa eftir þeirri grundvallarreglu réttarríkisins að rannsaka mál jafnt til sýknu og sektar.”

Jón Ásgeir Jóhannesson